XDreykjanes.is - Framtíðarsýn

Framtíðarsýn


Við síðustu bæjarstjórnarkosningar kynntu sjálfstæðismenn sýn til framtíðar og leiðir til að framkvæma hana. Stefnan var unnin í samráði við bæjarbúa á vel sóttum undirbúningsfundum. Við höfum endurmetið verkefnin á sérhverju ári þar sem við höfum lagt áherslu á að hitta bæjarbúa á íbúafundum, á ráðstefnum um fjölskylduna, skólann, verkframkvæmdir og menningu. Það er ánægjulegt að finna að nafn Reykjanesbæjar heyrist oftar nefnt þegar nýjungar í fjölskyldu- og skólamálum ber á góma og umhverfisbætur og fjölbreytt menningarlíf njóta jákvæðrar athygli.

Kannanir sýna að bæjarbúum hefur líkað þessi framtíðarsýn og sá kraftur sem hefur fylgt uppbyggingunni í Reykjanesbæ.  Við erum þakklát fyrir þann stuðning sem þið sýnið okkur. En um leið erum við minnug þess að verkefnið er unnið í þágu allra bæjarbúa.

Við erum reiðubúin að endurnýja samninginn við ykkur til að bæta mannlífið enn frekar.

Hér kynnum við framtíðarsýn fyrir næsta kjörtímabil. Við heitum þér að vinna áfram að öflugri uppbyggingu Reykjanesbæjar.

Við ætlum að skapa þér betri tíma til að lifa vel og njóta þess að búa í Reykjanesbæ.

Með góðum óskum,
Árni Sigfússon
Bæjarstjóri


Reykjanesbær... framtíðarsýn til 2014













© 2005-2006 Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ
Um vefinn | International | Póstur til vefstjóra | Powerd by ConMan