XDreykjanes.is - Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi


Reykjanesbær er stærsta sveitarfélagið í Suðurkjördæmi, því víðfermasta á landinu. Kjördæmið nær frá Garðskaga í vestri til Hafnar í Hornafirði í austri og í því eru tæplega 30 þúsund kjósendur. Í alþingiskosningunum 2009 hlaut Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurkjördæmi þrjú þingsæti.

Sem stærsta sveitarfélag í kjördæminu ber Reykjanesbær mikla ábyrgð í flokksstarfinu. Því leggur fulltrúaráðið og félögin áherslu á mikil samskipti við þingmenn og varaþingmenn kjördæmisins og upplýsingamiðlun til þeirra.

Ragnheiður Elín Árnadóttir

F. í Reykjavík 30. sept. 1967. For.: Árni Þ. Þorgrímsson (f. 6. ágúst 1931) flugumferðarstjóri og k. h. Hólmfríður Guðmundsdóttir (f. 22. júní 1928, d. 6. febr. 2003) aðalbókari. M. Guðjón Ingi Guðjónsson (f. 22. júlí 1964) framkvæmdastjóri. For.: Guðjón M. Guðmundsson og k. h. Sveinbjörg Laustsen. Synir: Árni Þór (2002), Helgi Matthías (2008). Stjúpdætur, dætur Guðjóns Inga: Gígja Sigríður (1989), Karítas Sveina (1994).
      Stúdentspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1987. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 1991. MS-próf í alþjóðasamskiptum (Master of Science in Foreign Service) frá Georgetown University í Bandaríkjunum.
      Starfsmaður Útflutningsráðs Íslands 1995-1998, aðstoðarviðskiptafulltrúi 1995-1996, viðskiptafulltrúi í New York 1996-1997 og verkefnisstjóri í Reykjavík 1997-1998. Aðstoðarmaður fjármálaráðherra 1998-2005. Aðstoðarmaður utanríkisráðherra 2005-2006. Aðstoðarmaður forsætisráðherra 2006-2007.

Unnur Brá Konráðsdóttir

 ...

Árni Johnsen

F. í Vestmannaeyjum 1. mars 1944. For.: Poul C. Kanélas, Detroit, Bandaríkjunum, og Ingibjörg Á. Johnsen (f. 1. júlí 1922, d. 21. júlí 2006) kaupkona. Hún átti síðar Bjarnhéðin Elíasson skipstjóra og útgerðarmann í Vestmannaeyjum. K. 1. (26. febr. 1966) Margrét Oddsdóttir (f. 28. sept. 1945) kennari. Þau skildu. For.: Oddur Sigurbergsson og k. h. Helga Einarsdóttir. K. 2. (13. des. 1970) Halldóra Filippusdóttir (f. 17. febr. 1941) flugfreyja. For.: Filippus Tómasson og k. h. Lilja Jónsdóttir. Dætur Árna og Margrétar: Helga Brá (1966), Þórunn Dögg (1968). Sonur Árna og Halldóru: Breki (1977).
      Kennarapróf KÍ 1966.
      Kennari í Vestmannaeyjum 1964-1965 og í Reykjavík 1966-1967. Starfsmaður Surtseyjarfélagsins með aðsetur í Surtsey sumar og haust 1966 og 1967. Blaðamaður við Morgunblaðið síðan 1967. Dagskrárgerðarmaður við Ríkisútvarpið og við Sjónvarpið frá stofnun þess.
      Hefur unnið að margs konar félagsmálum í Vestmannaeyjum og víðar. Var formaður tóbaksvarnanefndar 1984-1988. Í stjórn Grænlandssjóðs 1987-2001, í flugráði 1987-2001, í Vestnorræna þingmannaráðinu 1991-2001, formaður þess um tíma. Í stjórn Norrænu stofnunarinnar á Grænlandi, NAPA, um árabil. Formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins 1988-2001 og formaður stjórnar Sjóminjasafns Íslands 1989-1992.













© 2005-2006 Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ
Um vefinn | International | Póstur til vefstjóra | Powerd by ConMan