Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ
Sjálfstæðisfélög í hverju sveitarfélagi mynda sameiginlegt fulltrúaráð, sem fer með stjórn sameiginlegra mála félaganna á starfssvæðinu. Í Reykjanesbæ eru það Sjálfstæðisfélagið í Keflavík, Sjálfstæðisfélagið Njarðvíkingur, Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn og Heimir, félag ungra sjálfstæðismanna, sem mynda sameigilega fulltrúaráðið.
Fulltrúaráðið í Reykjanesbæ hefur það markmið að móta sameiginlega stefnu félaganna í flokksstarfinu auk þess sem það heldur úti sameiginlegum upplýsingavef og gefur út fréttabréf. Það er jafnframt hlutverk fulltrúaráðsins að skipa á lista fyrir bæjarstjórnarkosningar auk þess sem það velur eigin fulltrúa í kjördæmisráð.
Aðalstjórn:
Sigurgestur Guðlaugsson, formaður
Andri Örn Víðirsson, varaformaður
Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir, ritari
Runólfur Þór Sanders, gjaldkeri
Adda Sigurjónsdóttir
Anna Steinunn Jónasdóttir
Einar Bárðasson
Elísabet Magnúsdóttir
Hanna Björg Konráðsdóttir
Hrefna Gunnarsdóttir
Jón Axelsson
Karvel Gränz
Kjartan Þór Eiríksson
Sjálfkjörnir (formenn félaganna):
Árni Þór Ármannsson, Heimir félag ungra sjálfstæðismanna
Guðrún Þorsteinsdóttir, Sjálfstæðisfélag Keflavíkur
Haraldur Helgason, Njarðvíkingur
Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir, Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn
Stjórn kjörin á aðalfundi fulltrúaráðsins 15. júní 2010.
26. júní 2010 sagði Guðbjörn Guðbjörnsson sig úr stjórn fulltrúaráðsins.