Bæjarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ
Í sveitarstjórnarkosningunum í maí 2002 hlaut listi sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ hreinan meirihluta atkvæða og þar með 6 af 11 sætum í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Fyrir kosningarnar hafði flokkurinn undir stjórn Árna Sigfússonar boðið bæjarbúum til málefnafunda þar sem stefnuskrá flokksins var ákveðin. Í upphafi kjörtímabilsins var því stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins bókuð í bæjarstjórn og hefur meirihlutinn unnið eftir þeirri stefnu allt kjörtímabilið.